Karfa 0

Retró Bloggið

Páskatilboð Retró Lífs

Páskatilboð Retró Lífs

Gleðilega páska! Yfir páskana ætlum við hjá Retró Líf að hafa nettan 10% afslátt af öllum leikjum!  Til að virkja afsláttinn þarf eingöngu að stimpla inn afsláttarkóðann: "RETROPASKAR" í lok greiðsluferlisins og afslátturinn reiknast á alla tölvuleiki.  Afslátturinn gildir 27. mars - 2. apríl og allar pantanir sem eru gerðar yfir páskahátíðina verða settar í póst miðvikudaginn 3. apríl.  Við minnum á að pantanir sem ná 15.000kr eða hærra eru sendar frítt á næsta pósthús. Verið dugleg í súkkulaðinu og spilið einhverja góða leiki yfir páskana :-)    - Kiddó 

Halda áfram að lesa →


Retró Líf er 7 ára!

Retró Líf er 7 ára!

Yndislegu Retróvinir, Núna eru 7 ár liðin síðan Retró Líf birtist í fyrsta skipti á internetinu! Eins og alltaf viljum við þakka ykkur öllum fyrir að líta við þegar nostalgían læðist að, og vonandi verðum við áfram fyrsta stopp fyrir ykkur þegar löngunin til að spila gamlan leik úr fortíðinni krælir á sér. Það hefur margt breyst og gerst á þessum 7 árum í loftinu, en tilgangurinn er og verður áfram einfaldur; að bjóða Íslendingum um allt land möguleikann á því að versla notaða leiki fyrir gömlu góðu leikjatölvurnar ásamt völdum aukahlutum og íhlutum til að halda retróvélunum sínum gangandi.  Við prufuðum eina...

Halda áfram að lesa →


Retró Líf er 6 ára!

Retró Líf er 6 ára!

Kæru vinir, Í dag eru heil 6 ár liðin síðan litla skrítna vefverslunin okkar fór í loftið. Að vanda þökkum við ykkur öllum fyrir heimsóknirnar og áhugan sem Retró Líf hefur fengið síðastliðin 6 ár og við vonum að þið haldið áfram að líta við þegar ykkur vantar eitthvað nýtt, eða öllu heldur gamalt, til að spila.  Eins og á fyrri árum ætlum við í tilefni afmælisins að bjóða 10% afslátt af öllum vörum á Retró Líf næstu 10 daga. Til að virkja afsláttinn þarf einfaldlega að stimpla inn kóðann "RL6ARA" þegar gengið er frá kaupum. Kóðinn gildir til miðnættis sunnudaginn 13. nóvember. Takk enn og...

Halda áfram að lesa →


Retró Líf er 5 ára!

Retró Líf er 5 ára!

Kæru vinir, Retró Líf er 5 ára í dag! Við viljum byrja á því að þakka ykkur öllum fyrir að heimsækja síðuna okkar þessi síðastliðin 5 ár, og ennfremur þeim ykkar sem hafið keypt af okkur leiki, tölvur, snúrur, varahluti og aðra skrítna hluti sem hafa verið í boði á Retró Líf síðan 2016.    Nýverið bættust við tveir nýir vöruflokkar á Retró Líf: XBOX 360 og PlayStation 4. Þó þær tölvur verða seint kallaðar "Retró" eru mikið af leikjum fyrir þessar vélar að safnast upp hjá okkur og því viljum endilega koma þeim frá okkur og aftur í notkun...

Halda áfram að lesa →


SVÖRT HELGI

SVÖRT HELGI

Í fyrsta skipti frá opnun Retró Lífs ætlum við að taka þátt í geðveikinni sem er Black Friday.

Halda áfram að lesa →