Karfa 0

Retró Líf fer í dvala

Kæru Retróvinir. 

Sökum yfirvofandi flutninga Retró Lífs fjölskyldunnar þá verður Retró Líf lokað um ótilgreindan tíma. Flutningarnir neyða okkur því miður til að pakka niður öllum lagernum og leikirnir, tölvurnar og aðrir hlutir verða okkur óaðgengilegir í einhvern tíma. 

Síðasti opni dagurinn verður fimmtudagurinn 9. apríl. Fram að þeim tíma verður verslunin opin eins og venjulega að þeirri breytingu undanskildri að við munum ekki afgreiða neinar pantanir í póst, heldur verða allar pantanir sem eru gerðar fram að þeim tíma póstlagðar mánudaginn 13. apríl

Það er ekki með öllu ljóst hvenær við náum að opna aftur þannig ef þú hefur haft augastað á vissum leik en beðið með að tryggja þér hann, þá er tíminn til að gera það núna. Við vonumst til að opna aftur með haustinu, en viljum ekki lofa neinni fastri tímasetningu uppí ermina á okkur eins og er. 

Að venju þökkum við fyrir tryggðina og ástina sem þið hafið sýnt okkur síðastliðin ár. Þið eruð best!

Sjáumst vonandi fljótt aftur. 

 

 - Kiddó & Heiðrún



Eldri færsla


Skrifaðu athugasemd

Athugið að athugasemdir þurfa samþykki stjórnanda áður þær birtast.