Ghosts 'n Goblins er Platformer sem kom upphaflega út árið 1985 en á NES leikjatölvunni árið 1986 og er fyrsti leikurinn í sjö leikja seríu um ævintýri Arthur konungs sem er í sífellu að bjarga prinsessunni Prin Prin frá skrímslum og djöflum. Leikurinn hlaut góða dóma þrátt fyrir óhemju hátt erfiðleikastig og er einn best þekkti Platformer leikur tölvunnar í seinni tíð.