Lemmings er þrælskemmtilegur þrautaleikur þar sem spilarinn þarf að hjálpa slatta af vitlausum fígúrum í gegnum þrautaborð með því að láta þær taka á sig mismunandi verkefni til að leysa þrautir. Leikurinn kom út fyrir fjöldan allan af mismunandi leikjatölvum árið 1991 og gaf af sér fjöldan allan af framhaldsleikjum.