Donkey Kong á Gameboy er nokkuð ólíkur þeim sem er að finna á t.d. NES tölvunni. Spilarinn er Mario og þarf að ferðast um nokkur mismunandi borð í hopp og skopp stíl í leit að lyklum til að komast áfram. Donkey Kong kastar að sjálfsögðu tunnum í Mario við og við og gerir honum lífið leitt.
Rafhlaða leiksins virkar og vistar en er svo best við vitum upphaflega rafhlaða leiksins.