Game Boy Color er þriðja tölvuspilið sem kom út í hinni vinsælu Game Boy línu frá Nintendo. Fyrstu GBC tölvurnar komu á markað árið 1998 og voru fyrstu Game Boy tölvurnar til að bjóða uppá leiki í lit eins og nafnið gefur til kynna. Game Boy Color spilar alla Game Boy leiki sem komu út á eldri Game Boy tölvur. Game Boy tölvurnar frá Nintendo eru farsælustu tölvuspil allra tíma en, Game Boy línan hefur selt yfir 118 milljón tölvuspil frá upphafi.
Þessi tiltekni Game Boy Color er í Dandelion lit og er týpan CGB-001. Tölvan sýnir aldur sinn en er í mjög góðu ástandi og virkar fullkomlega.