
Nintendo 64
Nintendo 64 tilheyrir fimmtu kynslóð leikjatölva og kom fyrst út árið 1996 við góðar undirtektir. Tölvan var í framleiðslu allt fram til ársins 2003 þegar GameCube tók við keflinu fyrir Nintendo. Tölvan seldist í rúmlega 32 milljón eintaka um allan heim og 388 leikir voru gefnir út fyrir tölvuna yfir líftíma hennar.
Þessi tiltekna N64 leikjatölva er PAL útgáfa sem spilar evrópska PAL leiki líkt og þeir sem voru seldar á Íslandi á sínum tíma. Með tölvunni fylgir orginal fjarstýring og einn leikur. Tölvan er í góðu útlitslegu ástandi en ber með sér að vera um 25 ára gömul.
Pakkinn inniheldur:
Nintendo 64 Leikjatölvu
Nintendo 64 fjarstýringu
Nintendo 64 Straumbreyti
Nintendo 64 AV Sjónvarpssnúru
Leikinn Super World Cup 98
Leikinn Top Gear Rally
Retró Líf ábyrgist leikjatölvur í 30 daga frá sölu, en vísar að öðru leyti í hefðbundna skilmála Retró Líf.